4 ráð til þess að komast í æfingagír

Anna Eiríksdóttir rekur vefinn annaeiriks.is.
Anna Eiríksdóttir rekur vefinn annaeiriks.is. Ljósmynd/Saga Sig

Leikfimidrottningin Anna Eiríksdóttir deilir hér góðum ráðum til þess að komast aftur í gang eftir sælutíð sumarsins: 

1. Settu þér markmið

Þessi vísa verður aldrei of oft kveðin. Það skiptir ótrúlega miklu máli að setja sér mælanleg markmið sem stefnt er að ná með markvissum hætti. Einnig er gott að búta markmiðin niður í smærri sigra og verðlauna fyrir hvert skref að stóra markmiðinu, þannig verður leiðin að því viðráðanlegri og skemmtilegri.

2. Finndu æfingafélaga

Sumir eru mjög sjálfstæðir og agaðir þegar kemur að þjálfun og þurfa enga auka hvatningu á meðan aðrir hafa sig varla af stað en þá getur góður æfingafélagi skipt sköpum. Æfingafélaginn getur verið góður hópur, einkaþjálfari, vinur/vinkona, ættingi eða fjarþjálfari eins og ég en það getur gert gæfumuninn að finna sinn æfingafélaga til þess að halda sér við efnið.

3. Finndu hreyfingu sem þér finnst skemmtilegt að stunda

Það er miklu auðveldara að halda sér í góðum æfingagír með hreyfingu sem manni þykir skemmtileg og því nauðsynlegt að finna hvað hentar sér best og hvað maður hefur gaman af.

4. Taktu mataræðið föstum tökum

Samhliða því að byrja að hreyfa sig aftur af krafti þá er gott að taka mataræðið föstum tökum. Hreinsaðu til í skápunum, forðastu sykur, skyndibita og unnar vörur. Borðaðu hreina fæðu, vel af ávöxtum og grænmeti. Einnig er gott að íhuga viðeigandi skammtastærðir og borða reglulega yfir daginn. Þetta hjálpar þér að halda góðri orku sem skilar sér í æfingunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál