Leikkonan America Ferrera passar ekki upp á línurnar með því að vigta sig reglulega heldur með því að borða rétt. Leikkonan sem eignaðist sitt fyrsta barn í vor segist hafa breytt mataræði sínu og hætt að vigta sig fyrir löngu.
Í viðtali við Health segist Ferrera reyna að vera meðvituð um það hvernig matur lætur henni líða. Hvort henni líður betur og hvort hún fái orku úr fæðunni. Hún spyr sig einnig hvort ákveðin fæða geri hana þreytta og láti henni líða illa.
Ferrara fór rólega af stað eftir barnsburðinn og nú fimm mánuðum eftir að hún átti son sinn er hún byrjuð að finna fyrir styrk aftur. Hún segist hafa verið í mjög góðu formi áður en hún varð ólétt en hafi ekki hreyft sig jafnmikið á meðgöngunni og hún ímyndaði sér.