Aðdáendur tónlistarkonunnar Lizzo hafa harðlega gagnrýnt ummæli þjálfarans Jillian Michaels fyrir að kalla hana feita. Aðdáendur Lizzo segja Michaels vera uppfulla af fitufordómum.
„Af hverju erum við að fagna líkamanum hennar? Af hverju skiptir það máli? Af hverju erum við ekki að fagna tónlistinni hennar? Af því það verður ekki frábært ef hún greinist með sykursýki,“ sagði Michaels í þættinum AM to DM á BuzzFeed á miðvikudagsmorgun.
„Ég er bara hreinskilin. Ég elska tónlistina hennar. Börnin mín elska tónlistina hennar. En það hefur aldrei komið andartak þar sem ég hugsa „ég er svo glöð að hún er í yfirþyngd“,“ sagði Michaels.
Michaels lét ummælin falla í umræðu um heilsu og jákvæða líkamsímynd. Umræðan hefur vakið mikla athygli og hafa margir adáendur Lizzo látið í sér heyra. Leikkonan Jameela Jamil er þar á meðal.
Michaels er líkamsræktarþjálfari og var meðal annars þjálfari í þáttunum The Biggest Loser. Þá var hún einnig sögð vera með fordóma fyrir feitu fólki.
Lizzo er tónlistarkona sem skaust upp á stjörnuhimininn nokkuð hratt á síðasta ári. Hún hefur meðal annars fjallað um sjálfsást og jákvæða líkamsímynd í listsköpun sinni. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir bæði tónlist sína og þau jákvæðu skilaboð sem hún sendir með henni.
Á miðvikudagskvöld hafði Michaels hlotið mikla gagnrýni og ákvað að svara fyrir sig. Hún sagði að hún hefði ekki meint neitt illt með orðum sínum og óski ekki neinum að greinast með sykursýki.
Hún bætti við að hún voni að allir elski sig nógu mikið til þess að átta sig á því að alvarleg heilsufarsvandamál fylgi því að vera í yfirþyngd, þar á meðal hjartasjúkdómar, sykursýki og krabbamein.