Þeir sem hafa fylgst með þáttaröðinni The Goop Lab hafa án efa rekist á þáttinn The Pleasure Is Ours, sem fjallaði um það sem virðist eitt helsta áhugamál Gwyneth Paltrow um þessar mundir sem er kynlíf og æxlunarfæri kvenna.
Þættirnir sem sýndir eru á Netflix fjalla vanalega um ákveðið málefni þar sem starfsmenn Goop berskjalda sig með aðstoð sérfræðinga. Kynlífsráðgjafinn frábæri Betty Dodson, sem stundum er kölluð dónalega amman, var aðalstjarna þáttarins um mögulegan unað kvenna þegar kemur að kynlífi og sjálfsfróun.
Dodson er á því að allar konur ættu að þekkja útlit kynfæra sinna og ef þær skoða píkuna sína í hópi með fleiri konum öðlast þær æðruleysi fyrir þessu líffæri sem Dodson virðist algjörlega heilluð af. Hún þreytist ekki á að tala um „vulva“ í þættinum — eða ytri barma kynfæra kvenna og notar orðið í hverri setningu.
Hún segir að út af kynlífsiðnaðinum og síðum á borð við Pornhub sé konum haldið niðri og margar þeirra telji sig vera með afskræmd kynfæri af því þær líta ekki út eins og Barbie að neðan. „En hver gerir það?“ spyr hin ofurklára og sprenghlægilega Dodson.
Dodson mætti í þáttinn ásamt viðskiptafélaga sínum Carlin Ross, sem gerði sér lítið fyrir í þættinum og framkallaði fullnægingu með aðstoð ömmu gömlu.
Dodson hefur aðstoðað fjöldann allan af konum að fá fullnægingu með vinnustofum sínum. En hún hefur áratugareynslu af vinnu sinni. Hún segir þá skömm sem er yfir kynfærum kvenna í samfélaginu til þess gerða að halda konum niðri og hafa þær óöruggar.
„Kona sem getur sinnt sér sjálf er sjálfstæð kona og það hræðir karlmenn og samfélagið í heild sinni.“
Að mati Dodson ættu konur að velja að stunda kynlíf með öðrum, en ekki þurfa þess. Þær ættu að taka ábyrgð á fullnægingum sínum og þurfa að læra að biðja um það sem þær vilja.
Þátturinn hefur vakið athygli víða fyrir heiðarleika og að sjálfsögðu skemmtilega framkomu Dodson.