„Hendið vigtunum ykkar dömur“

Leikkoanan Bella Thorne.
Leikkoanan Bella Thorne. AFP

Fyrr­ver­andi Disney-stjarn­an Bella Thorne hvetur konur til þess að hætta að vigta sig. Thorne segir ekkert að marka töluna sem baðvogin sýnir en sjálf hefur hún reynslu af því. 

„Ég hef farið í ræktina á næstum því hverjum degi í sex vikur. Kom í ljós að ég hef aðeins misst hálft kíló af fitu en bætt á mig hálfu kílói af vöðvum,“ skrifaði Thorne á Twitter. „Hendið vigtunum ykkar dömur af því það er ekkert að marka þær. Það eina sem skiptir máli er að ykkur líður betur og þið eruð ánægðar með hvernig þið lítið út.“

Talan á vigtinni segir ekki allan sannleikann og eru alltaf fleiri að komast að það er kannski ekki sniðugt að móta sjálfsmynd sína inni á baðherbergi fyrir sturtu. Fleiri stjörnur hafa greint frá því að þær vigti sig ekki. Titanic-stjarnan Kate Winslet hefur ekki vigtað sig í meira en áratug. Fyrirsætan Chrissy Teigen var með áráttu fyrir því að vigta sig en áttaði sig á því þegar hún varð móðir að það var annað og meira sem skipti mái. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál