Sinntu orkuþörfinni í sumar og losnaðu við þreytu og yfirsnúning

Guðrún Kristjánsdóttir einn af eigendum Systrasamlagsins.
Guðrún Kristjánsdóttir einn af eigendum Systrasamlagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Vissir þú að líkami þinn þarfnast ákveðinna vítamína meira yfir sumarmánuðina? Ástæður þessa eru tengdar þáttum eins og aukinni orkuþörf, hraðari efnaskiptum og heitara veðri. Það er mjög mikilvægt fyrir líkamlega heilsu okkar að þörfinni fyrir þessi vítamín sé fullnægt. Ef það er ekki gert gætir þú fundið fyrir þreytu eða yfirsnúningi, og líkaminn mun ekki hafa vítamínin sem eru nauðsynleg til að undirbúa hann fyrir veturinn,“seg­ir Guðrún Kristjáns­dótt­ir eig­andi Systra­sam­lags­ins í nýj­um pistli á Smartlandi

Svo hér eru vítamínin sem þú þarft að taka í sumar!

Af hverju er A-vítamín mikilvægt?

Útfjólubláa ljósið í sumarsólskininu skemmir frumurnar okkar. Þetta getur valdið því að húðin eldist og hrukkur myndast. Þess vegna er afar mikilvægt að taka endurnærandi vítamín eins og A-vítamín. Skortur á A-vítamíni getur ekki aðeins valdið húðvandamálum. Hann getur einnig leitt til hárloss, og þess að neglur, tennur og bein verða lélegri. Auk þess að líða almennt illa geta komið upp vandamál með sjón.

Það er hægt að finna A-vítamín í jurta- og dýrafæðu.

Hér eru nokkur fæðutegundir sem innihalda A-vítamín: Spergilkál, kúrbítur, gulrætur, kartöflur, melóna, rauð paprika, greipaldin, baunir, vatnsmelóna, lýsi, mjólk, smjör, egg, ostur, jógúrt. Borðaðu líka mikið af fiski og taktu inn inn gott fjölvítamín með betakarótíni.

Af hverju er C-vítamín mikilvægt?

C-vítamín er mjög mikilvægt vítamín fyrir ónæmiskerfið. Skortur á C-vítamíni getur orsakað þurrk í húð, vöðva- og liðverki, hárlos (aumir hársekkir), þyngdartap, blæðingar í nefi og að þú gróir seint sára þinna. C-vítamín er því mjög mikilvægt til að tryggja heilbrigt sumar og búa sig undir vetrarmánuðina.

Mörg matvæli innihalda C-vítamín. Þau eru: jarðarber, melónur, kíví, appelsínur, greipaldin, mandarínur, sítrónur, bláber, steinselja, græn paprika, rauð paprika, rauðkál, karsi, blómkál, papaya, spergilkál, grænar baunir, sætar kartöflur, baunir, laukur. Hámaðu þetta í þig og taktu inn frábær C-vítamínblöndu til að hafa allt á tæru. Hafðu C- vítamín bundið fitusýrum svo það nýtist þér betur og fari vel í maga.

Af hverju er D-vítamín mikilvægt?

Þar sem D-vítamín er myndað úr sólarljósi getur það fallið niður yfir langa vetrarmánuðina. Það gerist sannarlega hér á landi. Því fer best á því að auka magn D-vítamín í líkamanum eins og mögulegt er yfir sumartímann. Þannig hjálpar þú líkamanum að undirbúa sig fyrir veturinn. Flest þekkjum við orðið vandamálin sem stafa af D-vítamínskorti, sem eru m.a. listaleysi, lið- og vöðvaverkir, þyngdaraukning, meltingarvandamál og mun lélegra ónæmiskerfi.

D-vítamín er hægt að búa til í líkamanum úr sólarljósi. Hins vegar er líka hægt að fá D-vítamín úr ákveðnum fæðutegundum. Helstu fæðutegundir sem innihalda D-vítamín eru: Kefir, ostur, jógúrt, mjólk, lýsi, sveppir, steinselja, hafrar, makríll, lax og lifur.

Af hverju er E-vítamín mikilvægt?

E-vítamín hefur andoxunaráhrif á frumuhimnuna og hjálpar til við að endurnýja frumur. Það bætir einnig heilsu húðar og hárs. Þessir kostir gera það að mikilvægu vítamíni fyrir sumarið.

Matvæli sem innihalda E-vítamín eru: sólblómafræ, möndlur, spínat, malaður rauður pipar, aspas, hveitikímolía, heslihnetuolía, möndluolía, hvítlaukur, jarðhnetur. Þú getur líka fengið það í hárnákvæmu magni í góðri fjölvítamín blöndu eins og þessari.

Hitt er svo annað að þessi Sport múltiblandan frá Virdian er hönnuð fyrir þá sem eru í mikilli orkuþörf, sem við erum mörg hver yfir sumarið. Blandan inniheldur allt sem þarf og það sem er einna mikilvægast yfir sumartímann, nefnilega mikið af steinefnum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál