Þjóðin er sólgin í sykurlausar vörur

Hallur Geir Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó og Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir markaðsstjóri …
Hallur Geir Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó og Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir markaðsstjóri Samkaupa.

Heilsuunnendur þessa lands bíða yfirleitt spenntir eftir Heilsu-og lífsstílsdögum Nettó en á meðan á þeim stendur er afsláttur af heilsuvörum í versluninni. Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir markaðsstjóri Samkaupa og Hallur Geir Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó eru fyrir löngu byrjuð að skipuleggja þessa sannkölluðu stórhátíð heilsuáhugafólks. Ingibjörg hefur haft umsjón með ritstýringu Heilsublaðs Nettó sem er nánast orðinn skyldulestur á mörgum heimilum og sjaldan verið glæsilegra. 

Hallur sér um að þjónusta viðskiptavini og standsetja verslanir svo heilsuvörur séu í forgrunni og riggar upp ofurtilboðum dagsins, sem koma ný hvern einasta dag meðan heilsudagar standa yfir svo fátt eitt sé nefnt. Það er að mörgu að huga enda einn annasamasti tími ársins í verslunum Nettó um allt land.

„Við höfum lagt mikinn metnað í að búa til ákveðna stemningu í kringum heilsudaganna okkar og hún kristallast vel í heilsublaðinu þar sem við fáum gríðarlega fjölbreyttan hóp heilsuþenkjandi fólks til að deila með okkur góðum ráðum, hugmyndum og uppskriftum. Heilsublaðið okkar hefur heldur betur vaxið og er orðið ígildi tímarits í dag og við erum gífurlega stolt af því,” segir Ingibjörg.

„Í blaðinu má finna áhugaverð viðtöl við Dr. Erlu Björnsdóttur um mikilvægi svefns, Thelmu Matthíasdóttur um hvað heilbrigð hugsun gerir fyrir heilsuna og Elísabetu Reynisdóttur um hormónastarfsemina auk þess sem Birgitta Líf gefur góð ráð varðandi hvernig best er að næra kroppa sem eru duglegir að æfa. Svo er blaðið auðvitað pakkfullt af dúndur tilboðum,” bætir hún við. 

Hallur segir stemninguna í verslunum Nettó alltaf einstaklega góða í kringum heilsudaga og að það sé hugur í fólki.

„Við erum alltaf að bæta við okkur í úrvali á heilsuvörum og erum komin með framúrskarandi úrval vítamína og bætiefna sem eru einmitt á sérstöku heilsudagaverði alla dagana. Þá höfum við verið að leggja mikla áherslu á að víkka hugtakið heilsa aðeins og höfum þar af leiðandi tekið inn fjölbreytta valkosti þegar kemur að umhverfisvænum og lífrænum hreinsivörum. Við erum stolt af að vera með eitt albesta úrval landsins á lífrænu grænmeti, vegan valkostum, ketó og sykurlausum vörum. Við reynum að elta trendin eins hratt og við getum og hlustum vel á okkar viðskiptavini sem vita hvað þeir syngja í þessum efnum. Fólk á að geta gengið að því vísu að það fái það sem það vantar í heilsuvörudeildinni okkar,” segir Hallur og bendir á að meðal þess sem þykir einstaklega spennandi ár séu fullorðins vítamínhlaupbangsarnir, prótín kleinuhringirnir og þá sé sykur-og saltlausa tómatsósan frá Heintz ansi líkleg til vinsælda. Hnetu-og möndlustykkin séu alltaf vinsæl, Kombucha drykkirnir, hvers kyns sykurlausir ísar og prótín snakk sé sömuleiðis alltaf mikið tekið yfir heilsudaganna.

„Það er því óþarfi að örvænta og halda að skipta þurfi út góðu bragði fyrir hollari valkost, ekki vantar framboðið af spennandi möguleikum og heilsudagarnir eru fullkominn tími til að prófa sig áfram, bæði hvað varðar framboð og ekki síður vegna afsláttanna,” segir hann og bendir á að heilsuvörudeildin teygi sig ekki síður yfir í Samkaupa appið, en nú gefst notendur í fyrsta skipti kostur á að fá Ofurtilboðsafsláttinn inn í appið. Þá er netverslun Nettó ekki síður komin í heilsugírinn en þau Hallur og Ingibjörg hvetja fólk sérstaklega til að nýta sér tækifærið og kíkja í innkaupakörfur vel valinna heilsu- og hreysti snillinga, en fólk eins og Beggi Ólafs, Indíana Jóhannsdóttir og RVK Ritual tvíeykið hafa þar búið til sínar eigin heilsukörfur í tilefni daganna og er nokkuð víst að þar sé allt á hreinu.

Heilsublað Nettó

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál