500 fm 2007 villa við Kópavogsbakka

Við Kópavogsbakka í Kópavogi stendur 505 fm einbýli með sjávarútsýni. Húsið er hannað af Krads arkítektum og er húsið á tveimur hæðum. Það er steinsteypt og það sem einkennir húsið eru gólfsíðir gluggar, mikil lofthæð og stórar rennihurðir. Rétt eins og í Hollywood-hæðunum í Kaliforníu.

Í húsinu er niðurlímt gegnheilt eikarparket og allar innihurðir eru sérsmíðaðar og ná þær upp í loft. Í húsinu eru tvær svefnherbergisálmur, önnur með tveimur stórum barnaherbergjum og baðherbergi og hin með stóru hjónaherbergi ásamt fataherbergi og stóru baðherbergi.

HÉR og HÉR er hægt að skoða húsið nánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál