Við Hjálmakur í Garðabæ stendur glæsilegt einbýlishús með öllum nútímaþægindum. Húsið er 383 fm að stærð en það var byggt 2010.
Húsið er vandað og fallegt. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með stórri eyju. Milliveggurinn sem skilur að stofu og eldhús er með steinhleðslu sem setur svip sinn á húsið.
Í húsinu eru níu herbergi og aukaíbúð á neðri hæð.