Húsin gerast ekki mikið sætari en þetta 61 fm hús sem stendur við Kirkjuveg 13. Í húsinu er hver einasti fermetri nýttur til fulls. Draumurinn um sérbýli ríkir sterkt í okkur Íslendingum og því ætti þetta hús að smellpassa fyrir þá sem eru staddir á þeim stað.
Húsið var byggt 1902 en síðustu ár hefur verið hugsað vel um það og af mikilli alúð. Húsið stendur ofarlega við Kirkjuveg en gengið er inn á aðalhæð þar sem forstofa, baðherbergi, stofa og eldhús fá að njóta sín.