Vel nýttir 47 fm á Blómvallagötu

Við Blómvallagötu í Reykjavík stendur 47 fm íbúð sem er vel skipulögð og smekkleg. Hver einasti fermetri er nýttur til fulls og fær heillandi Boho-stíll að njóta sín í íbúðinni. 

Eldhús og stofa eru í sama rými og er sérinngangur inn í íbúðina. Hvít innrétting og opnar hillur eru í eldhúsinu og er íbúðin máluð í mjúkum gráum tón. Fallegir púðar, mottur og svolítið bast fá að njóta sín í rýminu. Eldhúsið er málað í dekkri tón og kemur þetta allt saman mjög fallega út. 

Í kjallaranum er svo mjög kósí svefnherbergi sem er skráð sem geymsla. 

Af fasteignavef mbl.is: Blómvallagata 10

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál