Eitt dýrasta einbýlið í Reykjavík?

Falleg húsgögn prýða heimilið.
Falleg húsgögn prýða heimilið. ljósmynd/Fredrik Holm

Eitt af glæsilegri einbýlishúsum í Reykjavík er komið á sölu en um er að ræða 456,7 fermetra hús í Skerjafirði. Fasteignamat hússins eru 240 milljónir svo það hlýtur að teljast eitt af dýrari einbýlishúsum á landinu þó svo enginn sé verðmiðinn. 

Húsið sem er með fallegu útsýni var byggt árið 2009 og hannað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt. Sérstaka eftirtekt vekja sérsmíðaðar innréttingarnar en Guðbjörg Magnúsdóttir innanhússarkitekt sá um innanhúsarkitektúrinn.

Það eru þó ekki bara innréttingarnar sem vekja athygli en húsið er einstaklega vel búið fallegum listaverkum og húsgögnum. Í húsinu má meðal annars finna Eggið en hinum megin við vegginn er hægindastóllinn Eames Lounge. Í annarri stofunni er svo glæsilegt svart Le Corbusier-sófasett og flygill.  

Af fasteignavef Mbl.is: Skildinganes 44

ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
ljósmynd/Fredrik Holm
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál