Edda Gunnlaugsdóttir, textílhönnuður og tískuritstjóri Glamour, á einstaklega fallega íbúð við Freyjugötu í Reykjavík þar sem hún býr ásamt manni sínum og barni. Um er að ræða 80,6 fm íbúð á þriðju hæð.
Í íbúðinni eru tvær stofur og eitt svefnherbergi ásamt einu minna herbergi sem Edda notar sem barnaherbergi.
Íbúðin er máluð í fallegum gráum tón að innan og eru hurðir og gluggar máluð í hvítum lit. Liturinn passar vel við viðargólfin og svo er alls konar stílum blandað saman á heillandi hátt. IKEA mætir EPAL og fleira í þeim dúr. Grátt mætir gráu og svo fær svarti liturinn að vera með.
Nú er Edda að leita að leigjanda að íbúðinni sem leigist með húsgögnum. Aðeins reyklausir án gæludýra koma til greina. Nánari upplýsingar er að finna HÉR.