Söngkonan Lady Gaga hleypti tökuliði Vogue inn á heimili sitt í Malibu í Kaliforníu en hún lýsir húsi sínu sem sígaunahöll. Gaga svaraði nokkrum spurningum í tengslum við hlutverk sitt í myndinni A Star is Born og hélt sig utandyra.
Stíll Lady Gaga er litríkur rétt eins og persónuleiki hennar og minnir á villu í Suður-Evrópu enda Gaga af ítölskum og frönskum ættum. Rauðar rósir í bláum blómapottum koma einstaklega vel út við veggina.
Gaga situr og svarar spurningunum í notalegu horni þar sem hún er með bækur og te fyrir framan sig. Bak við hana sést inn til hennar þar sem má sjá mikið af fötum og höttum sem er kannski ekki skrítið þar sem Gaga er þekkt fyrir að klæða sig upp.