Laufabrauðsjárnin rjúka út

Kokka er ein af þessum verslunum þar sem allir virðast geta fundið eitthvað sem þá langar í. Hafa margir það fyrir sið í desember að líta inn í Kokku á Laugavegi, bæði til að kaupa fallegar gjafir en ekki síður til að kaupa ýmislegt smálegt og ómissandi fyrir eldhúsið.

Guðrún Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri Kokku og segir hún m.a. þurfa að gæta þess að nóg sé til af laufabrauðsjárnum þegar tekur að styttast í aðventuna. „Það er ótrúlegt hve mikið selst af þeim og sama hvað við reynum að tryggja gott framboð; laufabrauðsjárnin seljast alltaf upp. Að skera og steikja laufabrauð virðist vera afskaplega sterk hefð hjá landsmönnum og í huga margra markar það upphafið að jólagleðinni í desember að eiga notalega samverustund með fjölskyldunni við laufabrauðsgerð.“

Ætti heldur ekki að koma á óvart að útstunguform fyrir smákökubaksturinn seljast vel í mánuðinum en í verslun Guðrúnar má finna hér um bil öll þau form sem hugsast getur svo að ekkert þarf að standa í vegi fyrir tilþrifunum við piparkökubaksturinn. „Svo er einfaldlega algengt að fólk sem kemur í búðina í leit að gjöf rekist á eitthvað sem það vantar eða þarf að endurnýja, s.s. föt, pönnur og áhöld ýmiskonar til að elda jólamatinn.“

Eitthvað sem nýtist og endist

Flestir ættu að geta fyllt langan óskalista með vörum frá Kokku, en þar með er ekki sagt að hvaða vara sem er henti í jólapakkann. Fólk vantar ólíka hluti í eldhúsið og hefur líka ólíkan smekk. Guðrún bendir á að vitaskuld sé auðsótt að fá að skipta gjöfum en skemmtilegast sé samt ef tekst að gefa strax í fyrstu tilraun gjöf sem kemur í góðar þarfir og nýtist þiggjandum – jafnvel í mörg ár og áratugi. Lumar Guðrún á nokkrum góðum tillögum:

„Sjálf er ég gjörn á að gefa fólki hluti sem mig langar sjálfa í, og er það á vissan hátt heiðarlegasta gjöfin,“ segir Guðrún glettin og bætir við að leita ætti að gjöf sem hafi sem mest notagildi og komi í góðar þarfir daglega frekar en bara á tyllidögum.

„Góð pottjárnspanna gæti t.d. verið sniðugur kostur enda gagnlegt áhald sem – ef valin er vönduð vara – ætti að endast lengi. Ég man t.d. að ég fékk pottjárnspott í brúðargjöf fyrir lifandis löngu og í hvert skipti sem ég nota pottinn verður mér hugsað til manneskjunnar sem gaf mér hann – og þessi pottur er oft tekinn fram,“ segir Guðrún. „Og þegar ég flutti ung að heiman tók ég traustataki litla pottjárnspönnu sem móðir mín erfði frá móður sinni árið 1968. Ef vel er hugsað um pottjárnsáhöldin geta þau enst í nokkrar kynslóðir ef því er að skipta.“

Guðrún bætir við að pottjárnspönnur og -pottar njóti vaxandi vinsælda í dag enda með ýmsa jákvæða eiginleika sem létta matseldina. „Hér áður fyrr elduðu allir með pottjárni, en svo kom álið til sögunnar og þótti afskaplega sniðugt þar til í ljós kom að það væri ekki endilega gott fyrir heilsuna að elda allan mat í snertingu við ál. Þá kom teflonið, en það reyndist hafa þann ókost að vera skammlíft, og er pottjárnið núna aftur komið í fyrsta sæti. Þurfa pottjárnsvörur ekki að vera dýrar og má t.d. fá hér í versluninni litla pönnu, svipaða þeirri sem amma átti, á um það bil 6.000 kr.“

Skandinavísk nytjalist

Guðrún mælir líka með því að gefa barvörur. Landsmenn hafi tekið kokkteilamenningunni opnum örmum og blandi sér drykki við alls kyns tækifæri, og selur Kokka úrval af vörum til kokkteilgerðar og -drykkju. „Skandinavíska hönnunarvaran á líka upp á pallborðið um þessar mundir. Allir vita hvað Íslendingar eru veikir fyrir norrænni hönnun en ný og áhugaverð merki hafa bæst við eins og Spring Copenhagen frá Danmörku. Mætti kalla vörurnar frá Spring Copenhagen nytjalist því þær eru virkilega fallegar og til prýði þar sem þeim er fundinn staður, en gegna líka hlutverki við matseld og framreiðslu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál