Losar sig við þriggja eldhúsa villuna

Jessica Alba hefur sett gamla húsið sitt á sölu.
Jessica Alba hefur sett gamla húsið sitt á sölu. mbl.is/AFP

Hollywood-stjarnan Jessica Alba hefur ákveðið að losa sig við villu sem hún á í Beverly Hills-hverfinu í Kaliforníu. Variety greinir frá fasteigninni sem nú er komin á sölu og er föl fyrir 6.195 milljónir Bandaríkjadala eða vel yfir 738 milljónir íslenskra króna. 

Sérstaka athygli vekur eldhúsaðstaðan í húsinu. Ekki er einungis eitt eldhús í húsinu þar sem einnig er þar stórt útieldhús með sérstökum pizzaofni. Útieldhúsið er hægt að nota töluvert enda alltaf sól og blíða í Kaliforníu.

Húsið er einungis með þremur svefnherbergjum sem er líklega ástæðan fyrir því að Alba og eiginmaður hennar fjárfestu í stærra húsi árið 2017. Á efri hæð er þó lítil íbúð með tveimur svefnherbergjum og þriðja eldhúsinu sem hugsuð er fyrir starfsfólk eða gesti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál