Studio Hanna Whitehead, Ragna Ragnarsdóttir, 1+1+1, Theodóra Alfreðs, Studíó Flétta, Björn Steinar Blumenstein, Tinna Gunnarsdóttir, Rúna Thors & Hildur Steinþórsdóttir munu taka þátt í samsýningu íslenskra og erlendra hönnuða á sýningunni Crossover eftir Adorno sem fram fer á London Design Fair, dagana 19. -22. september á Old Truman Brewery í London.
„Á sýningunni Crossover eftir Adorno mætist úrval verka eftir sjálfstætt starfandi hönnuði frá 11 löndum. Hönnuðirnir og verkin eru vandlega valin af sýningarstjórum frá hverju landi, markmiðið er að sýna stöðu hönnunar í ólíkum löndum og það áhugaverðasta sem er að gerast á hverjum stað,“ segir á vef Hönnunarmiðstöðvar Íslands en sýningarstjórar sýningarinnar eru Mara Kristín Jónsdóttir og Hlín Helga Guðlaugsdóttir.
Aðrir hönnuðir á sýningunni koma frá Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Belgíu, Mexíkó, Finnlandi, Svíþjóð, Sviss, Tyrklandi og Noregi.
Hjá Adorno er lögð áhersla á verk hönnuða sem dansa á mörkum listar, hönnunar og handverks. Hönnuði sem móta senuna og þróa nýtt tungumál hönnunar ásamt því að viðhalda aldgömlum handverkshefðum í bland við nýrri og tæknilegri. Á sýningunni Crossovers by Adorno eru dregin fram fagurfræðileg einkenni hverrar senu fyrir sig og efnt til samtals á milli ólíkra þjóða, samtal sem hefst í hönnun en varpar líka ljósi á menningar- og samfélagsleg málefni.
Hönnunarfyrirtækið Adorno var stofnað árið 2017 af þeim Kristian Snorre Andersen og Martin Clausen og sérhæfir sig í að búa til og stuðla að samstarfi og samtali á milli hönnuða. Þeir framleiddu hönnunarsýninguna Now Nordic sem var ein af lykilsýningunum á HönnunarMars 2019 og fór fram í Hafnarhúsinu. Þar var áherslan á norræna samtímahönnun en með sýningunni Crossover hafa þeir tekið þetta skrefinu lengra með því að leiða saman hönnuði frá ólíkum löndum heimsins.