Svona getur þú hangið í garðinum

Dreamstime.com

Hengirúm og hengirólur af ýmsu tagi hafa verið vinsæl undanfarin misseri bæði úti sem og inni. Miklu máli skiptir að hafa alltaf öryggið í fyrirrúmi og vanda til verka þegar þessar græjur eru festar upp. 

Hengirúmið er bara svo notalegt, það gefur algjöra slökun. Mér finnst ég alveg endurnýjast við að leggjast þar í 15 mínútur,“ segir Elín Ágústsdóttir, annar eigenda fyrirtækisins Krumma, spurð af hverju hengirúm séu svona vinsæl, en fyrirtækið hefur séð mikla aukningu í vinsældum hengirúma undanfarin ár. Langt er síðan Elín uppgötvaði sjálf kosti hengirúmsins, en hennar eigið hengirúm er orðið 15 ára gamalt og er það mikið notað á heimili hennar. „Það er orðið upplitað af sólinni en það virkar enn vel og mér þykir vænt um það.“

Dreamstime.com

Öryggið í fyrirrúmi

Það er vel við hæfi að leita til Elínar eftir ráðleggingum varðandi það hvernig best er að hengja upp hengirúm, því fyrirtæki hennar hefur í 34 ár selt ýmis leikföng og leiktæki í garðinn þar sem öryggið er ávallt í fyrirrúmi. „Fyrst og fremst ráðlegg ég fólki að velja vandaðar og öruggar vörur. Margir horfa einungis á það hvort varan er CE-vottuð en það skiptir ekki minna máli að hún sé með evrópska öryggisstaðalinn EN1176,“ segir Elín. Hún bætir við að vissulega sé aldrei hægt að koma í veg fyrir öll slys en með því að velja gæðavörur sem uppfylli ákveðna öryggisstaðla sé vissulega hægt að draga úr hættunni. „Síðan er mikilvægt að fara eftir leiðbeiningum framleiðandans, bæði hvað varðar uppsetningu og notkun. Hengirúm eru t.d. gerð fyrir ákveðna þyngd og ákveðna hæð frá jörðu. Eins þarf að ganga frá festingum á ákveðinn hátt.“ Þá bendir hún á að ákveðin hætta geti verið fólgin í því að blanda vörum saman. Til að mynda þegar standur fyrir hengirúm er keyptur stakur þarf hann að vera í takt við hengirúmið. Tvöfalt hengirúm þarf stand sem ber tvo einstaklinga o.s.frv. „Fólk horfir mikið í verðið og vottaðar vörur eru yfirleitt dýrari en óvottaðar vörur. En þegar upp er staðið vill enginn bjóða börnunum sínum upp á slysagildru í garðinum. Það má aldrei gefa afslátt af örygginu.“

Fyrirbyggja nuddsár á trjám

Frístandandi standar sem hengirúm og hengirólur eru hengd í hafa verið vinsælir því þá er hægt að hanga hvar sem er. Þar sem trjáa nýtur við er þó tilvalið að nýta þau sem stoðir. Þegar það er gert þarf ekki bara að huga að örygginu heldur líka að velferð trjánna. Rúnar Ísleifsson, skógarvörður í Vaglaskógi, hvetur fólk til þess að festa leiktæki ekki í tré snemma á vorin þegar börkurinn er sem viðkvæmastur og vöxtur að hefjast. „Öspin er viðkvæm og því best að leyfa vextinum að komast í gang og bíða fram í júní ef það á að festa eitthvað í hana. Annars er þetta held ég bara spurning um heilbrigða skynsemi. Ef fólk velur þokkalega sverar greinar sem svigna ekki til þess að hengja rólur í, ekki grennri en 7-8 cm, skiptir ekki öllu máli hvers konar tré verða fyrir valinu.“ Rúnar bendir einnig á að gott sé að fyrirbyggja nuddsár eftir víra eða kaðla með því að setja eitthvað utan um börkinn þar sem kaðallinn liggur og nuddast við tréð. Djúp nuddsár allan hringinn geta truflað það að næringarefni nái að komast niður í rót trésins frá krónum þess. En hvað með festingar sem boraðar eru inn í tré, þolir tréð það? „Ég myndi alltaf frekar reyna að nýta það sem tréð hefur. Mörg tré eru margstofna og því með margar greinar sem hægt er að velja úr og þá er líka gott að reyna að dreifa þyngdinni. Ef festingar eru boraðar í tréð myndi ég líklega bora þær niður í haust og leyfa trénu að jafna sig eftir leik sumarsins.“

Dreamstime.com
Dreamstime.com
Dreamstime.com
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál