Eurovisionhúsið á Húsavík til sölu

Húsið sést í byrjun kvikmyndarinnar þar sem heljarinnar Eurovision-partý er …
Húsið sést í byrjun kvikmyndarinnar þar sem heljarinnar Eurovision-partý er haldið og Lars uppgötvar draum sinn um að vilja sigra keppnina. Skjáskot/Instagram

Við Héðinsbraut á Húsavík stendur fallegt og reisulegt hús. Aðdáendur eurovisionkvikmyndar Wills Ferrells, Eurovision Song Contest: The Story of Fire Sage, ættu að kannast við húsið en í kvikmyndinni er það heimili Lars sjálfs.

Húsið er byggt árið 1903 og í því eru tvær íbúðir en íbúðin sem um ræðir er á efri hæð. Húsið er hannað í einstaklega fallegum stíl líkt og mörg hús frá þessum tíma. Franskir hvítmálaðir gluggar eru á húsinu sem setja svip sinn á það. 

Lars á hlaupum út úr húsinu.
Lars á hlaupum út úr húsinu. Skjáskot/Netflix

Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö í risinu og eitt á miðhæðinni þar sem einnig er að finna eldhús, baðherbergi og stofu.

Húsið stendur á horni Héðinsbrautar og vegarins niður að höfninni og er með fallegu útsýni niður að hafnarsvæðinu, sem einnig bregður fyrir í kvikmyndinni. 

Að því er fram kemur í Sögu Húsavíkur byggðu bræðurnir Aðalsteinn og Páll Kristjánsson húsið. Þeir bræður voru ættaðir úr Mývatnssveit og giftir systrunum Helgu og Þóru Guðnadætrum. Um árabil ráku Aðalsteinn og Páll verslun í austurhluta hússins. Húsið var lengi kallað Aðalsteinshús og svo seinna Pálshús.

Af fasteignavef LögEignar

Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
Ljósmynd/Lögeign
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál