Haustkransar njóta æ meiri vinsælda hér á landi. Með þeim er hægt að fanga haustlitina og færa haustið og fegurð þess inn í hús. Litir eins og appelsínugulur, rauður, brúnn og fleiri jarðlitir eru vinsælir í haustkrönsum og efniviður eins og strá og þurrkuð blóm eru tilvalin í kransagerð. Á samfélagsmiðlinum Instagram eru fjölmargar hugmyndir, maður getur leitað undir myllumerkinu #wreath eða #fallwreath.