Anna Kolfinna Kuran listakona og Daníel Ágúst Haraldsson tónlistarmaður hafa sett sjarmerandi og litríka íbúð sína við Háaleitisbraut á sölu. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð. Ásett verð er 44,9 milljónir.
Íbúðin er á efstu hæð og er fallegt útsýni yfir Reykjavík úr borðstofunni. Í eldhúsinu er upprunaleg innrétting og rauður ísskápur í stíl. Ekki fer á milli mála að heimilisfólkið er skapandi listafólk. Stór mynd af ljóni er áberandi í stofunni. Einnig er gott safn af plötum í stofunni og píanóið ekki langt undan.