Berglind skapaði baðstofu drauma sinna

Berglind Sigmarsdóttir, veitingakona og myndlistarkona, og eiginmaður hennar Sigurður Friðrik …
Berglind Sigmarsdóttir, veitingakona og myndlistarkona, og eiginmaður hennar Sigurður Friðrik Gíslason tóku baðherbergið í gegn í heimsfaraldrinum. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir

Veitingakonan, myndlistarkonan og fagurkerinn Berglind Sigmarsdóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Friðrik Gíslason, tóku baðherbergið á heimili sínu nýverið í gegn. Útkoman er gjörsamlega stórkostleg og hafa þau hjónin skapað baðstofu sem myndi sóma sér vel á fimm stjörnu hóteli. 

Baðherbergið, sem Berglind kallar að vísu baðstofu, er útbúið infrarauðum klefa, dásamlegu baðkari og sturtu. Berglind vissi nákvæmlega hvaða stemningu hún vildi skapa í rýminu og naut aðstoðar Júlíu Andersen hjá ASK arkitektum við skipulagið. Sigurður og bróðir hans sáu svo um meirihluta vinnunnar.

„Við hjónin vinnum oft langa og stranga daga í veitingarekstrinum og mig langaði ekki bara í klósettherbergi, mig langaði í baðstofu. Þar sem við gætum notið þess að hvíla okkur og láta líða úr okkur. Siggi elskar að fara í bað og mig langaði íinfrarauðan klefa til að losa streitu, vöðvabólgu,“ segir Berglind í viðtali viðSmartland.

Marmarinn flæðir fallega um veggina og viðurinn passar fallega við.
Marmarinn flæðir fallega um veggina og viðurinn passar fallega við. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir

Berglind lagði áherslu á að baðherbergið yrði praktískt, en samt fallegt og tímalaust. Hún gekk út frá því að þetta yrði afslappandi baðstofa.

„Lýsingin skipti miklu, það gerði mikið að taka loftið niður. Það þarf að vera nógu bjart til þess að hægt sé að farða sig en líka haftkósí birtu og mikilvægt að geta hlustað á góða tónlist. Við erum líka með mörg börn í heimili, svo það er gott að hafa svona gott hvíldarathvarf innan heimilisins. Við opnuðum úr gamla litla baðherberginu yfir í annað herbergi til þess að hafa það nógu stórt til þess að rúma sturtu, baðkar oginfraklefann en það er líka pláss á gólfinu til að setjast og teygja á og hugleiða og svo setti ég góðan stól svo að það er hægt að spjalla saman og þess vegna lesa,“ segir Berglind.

Flísarnar eru fluttar inn frá Ítalíu og vógu 13 kíló …
Flísarnar eru fluttar inn frá Ítalíu og vógu 13 kíló hver. Spegilinn og sturtuglerið eru frá Íspan. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Berglind vildi hafa gyllt blöndunartæki.
Berglind vildi hafa gyllt blöndunartæki. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir

Hún segir ákvörðunina um að hafa infrarauðan klefa hafa verið mjög góða. Hann nýtist öllum fjölskyldumeðlimum sem hafa vanalega í nægu að snúast. Berglind og Sigurður reka veitingastaðina GOTT og Pítsagerðina í Vestmannaeyjum.

„Það er mikil streita í þeirri vinnu sem við erum í og við erum mikið á hlaupum sérstaklega yfir þessa sumarmánuði. Það er mikið áreiti og þegar maður kemur heim getur tekið bara dágóðan tíma að ná sér niður til að fara að sofa. Klefinn er rosalega góður til að losa spennu og hefur margvísleg góð áhrif á líkamann. Við eigum líka unglinga í íþróttum og það er mjög gott fyrir þá að fara í klefann,“ segir Berglind.

Hún valdi innréttingu í eik sem tónar við infra rauða …
Hún valdi innréttingu í eik sem tónar við infra rauða klefann. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir

„Ég var í smá pælingum með hvernig klefinn gæti komið smart inn í þetta, en ákvað þá bara að hafa baðinnréttinguna í eik og kaupa baststólinn svo það talaði saman. Það var lykilatriði að setja klefann inn í vegginn, hafa hann ekki bara frístandandi á gólfinu,“ segir Berglind.
Yndislega fallegur marmari prýðir veggi baðstofunnar en hann fengu þau hjá bróður Berglindar, Pálma Sigmarssyni, sem flytur inn flísar og marmara frá Ítalíu.

„Þar sem erfitt var að fara í búðir á þessum tíma sökum heimsfaraldurs og búðir áttu í basli með að fá vörur var einfaldast að fá mestallt í gegnum hann og bara sent bara heim. Ég vildi hafa gyllt blöndunartæki, finnst það eitthvað grand og fallegt,“ segir Berglind.

Blöndunartækin passa vel við ítalska marmarann.
Blöndunartækin passa vel við ítalska marmarann. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Berglind segir það hafa verið lykilatriði að setja klefann inn …
Berglind segir það hafa verið lykilatriði að setja klefann inn í veginn. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Í klefanum geta þau hjónin slakað á eftir langa vinnudaga.
Í klefanum geta þau hjónin slakað á eftir langa vinnudaga. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Baðkarið er einnig flutt inn frá Ítalíu.
Baðkarið er einnig flutt inn frá Ítalíu. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Ljósin eru Ballroom diamond cut frá Design by us og …
Ljósin eru Ballroom diamond cut frá Design by us og fást í Snúrunni. Þau eru eftirlætishlutur Berglindar í baðstofunni. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál