Hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir hafa fest kaup á glæsiíbúð læknisins Jóns Ívars Einarssonar sem starfar við Harvard. Íbúðin er í Garðabænum og einstaklega skemmtileg. Hún var á sínum tíma hönnuð af Rut Káradóttur sem hefur getið sér gott orð sem einn besti innanhússarkitekt landsins.
Knútur er lögfræðingur og lífskúnstner en hjónin stofnuðu gistiheimilið Frost og funa í Hveragerði og ráku það í 15 ár. Hjónin eru miklir listunnendur en þau ráku Listmunahúsið í Lækjargötu á sínum tíma.
Það á án efa eftir að fara vel um þau í Garðabænum þar sem stutt er í náttúru, góða veitingastaði og kyrrð.