Maður #ársins keypti 160 milljóna raðhús í Fossvogi

Guðmundur Haukur Guðmundsson er vinsæll á Twitter.
Guðmundur Haukur Guðmundsson er vinsæll á Twitter. Ljósmynd/Samsett

Guðmundur Haukur Guðmundsson Maður #ársins á Twitter festi kaup á glæsilegu ráðhúsi í Fossvogi ásamt sambýliskonu sinni, Snædísi Helgadóttur. Guðmundur er ekki bara fyndinn á Twitter því hann starfar hjá Samkeppniseftirlitinu. 

Húsið sem Guðmundur Haukur og Snædís keyptu er 212 fm að stærð og var byggt 1971. Húsið er á pöllum eins og flest raðhúsin í hverfinu. Um er að ræða endaraðhús sem er hraunað að utan með brúnu þaki. Eldhúsið snýr út að götu í norður en stofur og herbergi snúa í suður. Í kringum húsið er gróinn garður með heitum potti og verönd. Það ætti því ekki að fara illa um fjölskylduna í húsinu.

Guðmundur Haukur og Snædís greiddu 160 milljónir fyrir húsið. Smartland óskar þeim til hamingju með endaraðhúsið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál