Viltu leigja Kúst og fæjó-íbúðina?

Heimilistónar fluttu lagið Kúst og fæjó í Söngvakeppninni árið 2018. …
Heimilistónar fluttu lagið Kúst og fæjó í Söngvakeppninni árið 2018. Nú er íbúðin, sem myndbandið var tekið upp í, til leigu. Skjáskot/Youtube

Það getur verið snúið að finna sér íbúð til leigu og sér í lagi ef þú vilt leigja íbúð með sögu. Þú þarft þó ekki að örvænta því á leiguvef Borgar má sjá áhugaverða eign til leigu við Skólavörðustíg 6b.

Íbúðinni er lýst sem gullfallegri og bjartri tveggja herbergja íbúð. Hún leigist með húsgögnum í fimm til sex mánuði frá 1. apríl.

Í leigufréttinni segir að eftirfarandi myndband hafi verið tekið í íbúðinni og sýnir vel hvernig hún er. Nokkuð víst er að aðdáendur Heimilistóna munu bregðast hratt við. Í það minnsta þeir sem eru á höttunum eftir íbúð um þessar mundir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál