Leiðin að hinni fullkomnu jólasteik

Ástríðukokkarnir Anton Levchenko og Bjarki Þór Valdimarsson vinna saman alls konar matreiðsluverkefni undir nafninu Matarmenn. Þeir leiða okkur hér í gegnum nokkur lykilatriði varðandi hvernig best er að meðhöndla kjöt yfir hátíðarnar. Þeir telja að þessi skref séu einstaklega mikilvæg. Þeir vita allt um matreiðslu á kjöti eins og kemur fram í jólabæklingi Nettó

Hvenær á að taka kjötið úr ísskápnum?

„Þegar við eldum steikur á borð við lambakjöt eða nautakjöt leitumst við við að taka þær úr kælingu sirka tveimur tímum fyrir eldun til þess að leyfa kjötinu að ná jöfnum hita. Ef við tökum kjötið úr ísskápnum og beint á pönnuna munum við sjá ofeldað kjöt á köntunum en hrátt í miðjunni, við erum alltaf að leita eftir jafnri og fallegri eldun.“

Hvenær er kjötið tilbúið?

„Í gömlum matreiðslubókum má finna setningar á borð við „1 kg lambalæri skal eldast í klukkustund í ofninum“. Þetta er í raun úrelt, að gefa upp kg af kjöti og eldunartíma til hliðar. Allir ofnar eru jú sérstakir og allar steikur misþykkar, tölum nú ekki um ef einn tók kjötið úr ísskápnum tveimur tímum fyrr og annar ekki. Það sem allir ættu að eiga í skápnum heima hjá sér er kjarnhitamælir! Við höldum því fram að það sé hjarta eldhússins.“

Hvíld á kjöti eftir eldun

„Hvíldin er jafn mikilvæg og eldunin sjálf; ef við hvílum ekki kjötið missum við mestallan safann úr fallegu steikinni okkar. Við erum að leitast við að hvíla lambið og nautið allavegana í 10 mínútur eftir að það kemur úr ofninum. Varðandi kalkúninn er oft talað um að hvíla hann jafn lengi og þið eldið hann. Við skiljum að það er þolinmæði sem fæstir hafa en gefið heilum kalkúni allavega 30 mínútna hvíld eftir eldun. Gott er að hafa í huga að koma kjötinu af pönnu / úr eldfasta mótinu á kaldan disk svo eldunin haldi ekki áfram. Leggja álpappír ofan á kjötið meðan hvíldin á sér stað, en pössum að loftflæði sé undir álpappírnum.“

Matarmenn óska öllum gleðilegra jóla og vona að allir eldi góðan mat yfir hátíðarnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál