Grafarvogurinn iðaði af lífi og fjöri þegar þorrablótið var haldið í hverfinu af Ungmennafélaginu Fjölni. Eins og sést á myndunum var frábær stemning enda eitt fjölmennasta þorrablót landsins.
Fjölnir fagnar 30 ára afmæli í febrúar og var þorrablótið liður í afmælisdagskrá ársins. Dagskráin var hin glæsilegasta og byrjaði Margrét Eir með dinner-tónlist á meðan gestir voru að koma sér í húsið. Sveppi massaði veislustjórnina og söngvarar kvöldsins voru ekki af verri endanum, Helgi Björns, Eyfi, Brigitta Haukdal og Ingó ásamt hljómsveit sem lék fyrir dansi fram á nótt. Veitingarnar á blótinu voru frá þorrakónginum í Múlakaffi og voru frábærar að vanda.