Allt á útopnu í Geysi

Það var margt um manninn við sýningaropnun í Kjallaranum í Geysi Heima á laugardaginn þegar Halla Einarsdóttir opnaði einkasýningu sína, ÞRÖSKULDUR, SKAÐVALDUR, ÁBREIÐUR í kjallara verslunarinnar en þar er rekið gallerí. Fjöldi fólks lagði leið sína á Skólavörðustíginn en boðið var upp á léttar veitingar.  

Geysir Heima er ný hönnunar- og lífstílsverslun sem opnaði í desember síðastliðinn.  Um er að ræða nýjan útgangspunkt hjá Geysi sem hingað til hefur haft fatnað og tískuvöru á boðstólnum en með Geysi Heima bætist nú hönnunarvara og listmunir við úrvalið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál