„Kæra Deidre, ég er ólmur í að komast upp í rúm með kynþokkafullu systur eiginkonu minnar. Þær hafa enga hugmynd um það. Ég er 36 ára og konan mín er 32 ára. Við eigum tvö yndisleg börn en undanfarnar vikur get ég ekki hugsað um annað en kynlíf með mágkonu minni. Hún er 29 ára og mjög aðlaðandi. Hún er með yndislegar línur og sýnir þær þegar hún klæðir sig,“ skrifaði giftur maður í bréfi til Deidre, ráðgjafa The Sun.
„Ég elska eiginkonu mína og börnin mín og myndi lýsa sambandi okkar sem mjög góðu, ég veit ekki af hverju ég fékk þessa flugu í höfuðið svona allt í einu. Hluti af mér vill láta til skara skríða en ég veit að það er heimskulegt og gæti kostað mig hjónabandið og börnin.“
Ráðgjafanum fannst ekki góð hugmynd að taka framhjáhaldið lengra. „Ef þú hefur einhverja stjórn þá gerir þú ekkert. Svona girnd getur komið upp úr þurru og dofnað jafn skyndilega ef þú gerir ekkert. Þú átt í hættu að missa svo mikið og eiginkona þín myndi aldrei fyrirgefa ykkur ef hún kæmist að þessu, sem hún myndi gera. Ímyndaðu þér líka bara hvaða áhrif þetta hefði á börnin þín og hvernig þau myndu hugsa um þig. Einbeittu þér að því að styrkja og bæta góðu hlutina sem þú deilir með eiginkonu þinni,“ skrifaði ráðgjafinn.