Vel heppnað konukvöld Sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi var haldið með pompi og prakt á dögunum. Neskonur fjölmenntu og skemmtu sér konunglega með kvenframbjóðendum XD. Til gamans má geta þess að af sjö efstu frambjóðendum eru fimm konur, sem má teljast mjög gott.
Það eru þær Ásgerður Halldórsdóttir, oddviti og bæjarstjóri, Sigrún Edda Jónsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Sigríður Sigmarsdóttur og Guðrún Jónsdóttir. Auk þeirra sitja þær Þórdís Sigurðardóttir og Petrea Jónsdóttir sem skipar heiðurssæti listans.
Bjartur Guðmundsson var einn þeirra sem talaði þetta kvöld og fékk stelpurnar á Nesinu til fara út fyrir þægindarammann. Bjartur er þekktur fyrir að koma fólki í topp tilfinningalegt ástand og sumir segja að eftir að hlusta á hann tala verði heimurinn betri.
Dagskráin var vel skipuð þeim Birnu Bragadóttur, hótelstjóra á Sandhóteli, Bjarti Guðmundssyni og Sylvíu Erlu Melsteð söngkonu.
Gleðin var allsráðandi en við látum myndinar tala sínu máli.