Harpan var full af súkkulaðielskendum á dögunum þegar bleikt súkkulaði frá Nóa Síríus var kynnt. Ásgeir Kolbeins lét sig ekki vanta enda mikill smekkmaður.
Veislan var öll hin glæsilegasta og fengu gestir að bragða á þessu einstaka súkkulaði, auk annarra léttra veitinga. Gestir voru á einu máli um að hér væri á ferðinni súkkulaði með einstöku bragði, eitthvað nýtt og sérstakt. Súkkulaðið fær lit sinn og bragð frá kakóbauninni sjálfri og engin aukaefni eru í súkkulaðinu.
Nói Síríus er þriðji súkkulaðiframleiðandinn í heiminum sem fær þetta einstaka súkkulaði, sem unnið er úr fagurbleikri Rúbín súkkulaðibaun, til sín. Kakóbaunin hefur verið yfir áratug í þróun og fyrsta uppskera leit loks dagsins ljós fyrir nokkrum mánuðum. Rúbín súkkulaðið verður fáanlegt í takmörkuðu magni í völdum verslunum frá og með næstkomandi laugardegi.