Það var glatt á hjalla á Hótel Holti þegar Anna Þorvaldsdóttir tónskáld var valin Háskólakona ársins 2018.
Félag háskólakvenna var stofnað 1928 og fagnar því 90 ára afmæli á þessu ári. Í fyrra var í fyrsta skipti í sögu félagsins efnt til vals á Háskólakonu ársins þegar dr. Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, varð fyrir valinu en Unnur lauk BA-gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands og doktorsgráðu í klínískri faraldsfræði við Karolinska Institutet í Svíþjóð. Unnur Anna er meðal annars að vinna að einni stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á samspili erfða og heilsufarslegra afleiðinga alvarlegra sálrænna áfalla.