Rakel Fjeldsted Jóhannesdóttir og Guðrún Fjeldsted Jóhannesdóttir fögnuðu nýverið opnun Búðin Decor að Askalind 4 í Kópavogi. Undanfarin þrjú ár hefur verslunin verið á netinu.
„Viðburðurinn var notaleg kvöldstund þar sem skálað var fyrir bjartri framtíð og spennandi tímamótum hjá okkur. Markhópurinn okkar eru konur sem kjósa glæsileika í bland við smávegis töffaraskap.
Undanfarinn tími hefur verið lyftistöng fyrir vefverslanir því fólk hefur í auknum mæli lært að panta sér á netinu. En nú þegar lífið er orðið meira frjálslegt og opnara þá vildum við mæta þörfum fólks til að geta komið og snert vörurnar sem við bjóðum upp á,“ segja þær.
Systurnar hafa brennandi áhuga á flestu því sem við kemur heimilinu.
„Þetta er einhverskonar köllun sem nærir okkur. Við tókum hálfgerða skyndiákvörðun í fæðingarorlofi og pöntuðum ferð út á sýningu í Frankfurt og þá var ekki aftur snúið.“
Hvernig heimili eru ykkur að skapi?
„Við erum mikið fyrir blandaðan stíl sem er ekki of „steríll“ heldur frekar í persónulegum stíl þess sem býr á heimilinu,“ segja þær.