Síðasta vika janúarmánaðar lagðist vel í þjóðina ef marka má Instagram. Ísland tryggði sér 6. sætið á Evrópumeistaramótinu í handbolta og stjórnvöld tilkynntu um aðgerðaáætlun til afléttinga. Smartland tók saman það helsta af Instagram í vikunni.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er staddur í borginni Barcelona á Spáni þar sem hann nýtur lífsins í stuttbuxum.
Áhrifavaldurinn Thelma Guðmundsen slappaði af um helgina og vildi að aðrir gerðu það líka.
Áhrifavaldurinn og dansarinn Tara Sif Birgis var í stemningu í vikunni og skartaði bleikri gegnsærri blússu.
Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir skellti í eina kroppamynd.
Áhrifavaldurinn Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir var í svörtum kjól.
Móeiður Lárusdóttir og fótboltamaðurinn Hörður Björgvin Magnússon tilkynntu að lítil stúlka væri á leiðinni.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir fór í klippingu.
Hjónin Inga Lind Karlsdóttir og Árni Hauksson nutu lífsins í Austurríki.
Það gerði dóttir þeirra líka, kraftlyftingakonan Arnhildur Anna Árnadóttir, en hún er dóttir Árna og Borghildar Erlingsdóttur forstjóra Hugverkastofu og stjúpdóttir Ingu Lindar.
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson greindi frá því að þriðja dóttir hans væri fædd.
Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir birti ískalda mynd af sér og leikkonunni Kristínu Pétursdóttur. Þær settu sig í stellingar Kendall Jenner sem pósaði í rándýrum Miu Miu stígvélum og vakti heimsathygli. Síðan þá hafa margar drottningar leikið þetta eftir!
Áhrifavaldurinn Erna Kristín Stefánsdóttir fékk innblástur frá Kendall Jenner eða kannski bara Birgittu og Kristínu og skellti sér í sundfötum og tók nokkrar myndir.
Tónlistarkonan og leikkonan Selma Björnsdóttir birti fallega mynd af sér og Kolbeini Tuma Daðasyni.
Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og fótboltamaðurinn Theódór Elmar Bjarnason klæddu sig upp eins níundi áratugurinn væri mættur aftur. Góða kvöldið Harpa og Jón Hjaltalín.
Tónlistarkonan GRDN sýndi fallega óléttukúlu og greindi þar með frá því að hún ætti von á barni með kærasta sínum, læknanemanum Árna Steini Steinþórssyni.