Kynning á nýju merki KLAK - Icelandic Startups í sumarpartý ársins 2022 var haldið í húsakynnum KLAK í Grósku fimmtudaginn 24. mars við mikinn fögnum viðstaddra.
Sprotar og frumkvöðlar hvaðan af úr frumkvöðlasenunni fögnuðu með KLAK og þar má nefna nokkur sprotafyrirtæki og frumkvöðlafyrirtæki; Tactical, Fractal 5, 50 Skills, Aurbjörg, Plaio og Nordic Wasabi svo einhver séu nefnd. Nokkur samtök, sjóðir og vísisjóðir komu í sumarpartýið en Brunnur, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins fögnuðu með starfsfólki KLAK - Icelandic Startups á þessum merka degi.
DJ Sóley keyrði sumarpartýið af stað og setti tóninn fyrir kvöldið. Hitinn fór svo í hæstu hæðir þegar hljómsveitin Úlfur Úlfur tók lagið sem skörtuðu þeim Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni en sá síðari er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár.
Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK hélt opnunarræðu vegna kynningu á nýju merki KLAK kallaði upp heiðursgest kvöldsins í lok ræðu sem var engin önnur en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem þakkaði fyrir glæsilega veislu og óskaði KLAK - Icelandic Startups til hamingju með nýtt merki.