Það var einstök stemning í Ármúlanum þegar Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands og frambjóða Framsóknarflokksins í Reykjavík bauð í kvennateiti. Að sjálfsögðu mætti kvenpeningur Framsóknarflokksins í grænum fötum til að undirstrika tengslin við flokkinn.
Ásamt því að vera háskólakennari, rithöfundur og frambjóðandi hefur Árelía Eydís skrifað pistla inn á Smartland frá upphafi og hafa þeir notið mikilla vinsælda.
Í boðinu hélt dóttir Árelíu Eydísar, Álfrún Perla Baldursdóttir, erindi og það gerði líka Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prestur og rithöfundur hélt tölu um magnað móðurlíf og Magnea Gná talaði um ungar konur í pólitík.
Boðið var upp á áfengar og óáfengar veitingar og eins og sjá má á myndunum var fjör í boðinu.