Stjörnurnar skinu skært á nýárstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem fram fóru á dögunum. Auk þess var ekki þverfótað fyrir spariklæddum gestum.
Stórsöngvararnir Þóra Einarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Dagur Þorgrímsson, Andri Björn Róbertsson og Gísli Rúnar Víðisson komu fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Daníel Þorsteinsson stjórnaði sveitinni sem flutti polka, aríur, forleiki og valsa og frumflutti auk þess nýju sinfóníuna Fantasía um Ólaf Liljurós eftir Michael Jón Clarke.
Eins og sjá má á myndunum skemmti fólk sér ljómandi vel.