„Það sem byrjaði sem smá daður með yfirmanni mínum endaði sem alvarlegt framhjáhald. Hann er með kynþokkafullan vöðvastæltan líkama og er frábær elskhugi. Við þurftum hins vegar að hætta því og ég veit ekki hvað ég á að gera,“ skrifaði 34 ára gift kona og leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun.
„Framhjáhaldið var mjög innilegt. Við hittumst hvar sem við gátum fyrir einn stuttan í fimm mínútur eða klukkutíma langar ástarlotur. Allt gekk mjög vel þangað til eiginmaður minn varð tortrygginn. Til þess að bjarga hjónabandi mínu þurfti ég að gera minna úr hlutunum og segja að ekkert væri í gangi. Það hefði líka flækt hlutina mjög mikið í vinnunni ef einhver hefði komist að þessu.
Eina sem ég gat gert var að hætta í vinnunni, sem ég elskaði, og slíta öllu sambandi við yfirmann minn. Þetta brýtur mig niður á hverjum degi og ég hugsa um yfirmann minn frá því að ég vakna þangað til ég fer að sofa. Mér finnst eins og ég sé að ganga í gegnum þennan sársauka og hann hafi komist skaðlaus í gegnum þetta og sé heima hjá sér hamingjusamur með eiginkonu og börnum. Við hétum því að fara aldrei frá mökum okkar en af hverju gleymdi þessi manneskja sem heltók mig allan þennan tíma bara öllu?“
Ráðgjafinn segir að konan hafi á erfiðan hátt lært sína lexíu. Það hættulega við hversdagslegt kynlíf sé að fólk byrji að falla hvort fyrir öðru. Þetta sé oft erfitt fyrir konur og það endi illa hjá þeim.
„Kannski var kynlífið extra gott með yfirmanni þínum en hann hafði þann töfraljóma að hafa valdið auk þess sem það kryddaði að þetta var bannað. Í raunveruleikanum ertu gift og hann líka og þetta hefði aldrei orðið neitt meira. Ekki eyða meiri tíma í að hugsa um hann, hættu að hugsa um hann með því að vinna vel í því að kveikja aftur í hjónabandi þínu. Ég skal veðja að eiginmaður þinn myndi vilja láta vekja sig á kynþokkafullan hátt. Þú getur líka stundað eldheitt kynlíf með honum svo lengi sem þú leggur þig fram.“