Sjana Elise er einn flottasti jógi veraldar. Hún er dugleg að ræða hlutina eins og þeir eru. Hún hefur farið í gegnum ótrúlegar áskoranir en ákveðið að gera það besta úr lífinu.
Hún leggur rækt við líkama og sál og tekur fólki ekki persónulega.
Nýverið hefur hún verið að tala um hamingjuna og ástina, enda virðist vera að hún hafi fundið stóru ástina í sínu lifi.
„Þú ert nákvæmlega þar sem þú átt að vera núna. Þú ert nóg, hamingja þín býr í þér. Öll tólin sem þú þarft til að upplifa hamingju búa innra með þér. Þú ert ekki brotin/brotinn. Þig vantar ekki neitt. Þú ert sterkur/sterk, klár og fallegur/falleg.
Til að tengja inn á þessa orku, þá þarftu einungis að trúa því að þú sért fullkomin sköpun. Að þú sért nóg.“