Við státum okkur mörg hver af því að hafa alltaf nóg að gera og erum helst upptekin hverja einu og einustu mínútu dagsins. Þegar við komum svo upp í rúm er lítil orka eftir til þess að gera nokkuð annað en að leggjast beint á koddann og svífa inn í draumaland.
Á sama tíma kannast eflaust margir við það að hafa hreinlega ekki tíma til að stunda kynlíf með maka sínum, sérstaklega þegar sambandið er ekki lengur á sínum sokkabands árum. Þá er betra að hugsa í lausnum en ekki vandamálum. Ef þú vilt hafa tíma til að stunda kynlíf, en finnur hreinlega ekki tíma til þess þá er stelling alveg málið því hún krefst lítillar fyrirhafnar.
Stellingin er einföld, þar sem þið eruð bæði standandi. Þú einfaldlega beygir þig aðeins fram og maki þinn beygir sig í hnjánum. Þessi stelling örvar g-blettinn vel og maki þinn er með frjálsar hendur til að gera það sem hann langar til. Það besta við hana er hins vegar að það þarf ekki mikið pláss til að framkvæma hana, svo þið getið farið að láta hugann reika að hentugum stöðum.