„Þú græðir ekki pening á fólki sem er í jafnvægi“

Héðinn Unnsteinsson.
Héðinn Unnsteinsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Héðinn, sem starfaði um árabil hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, hefur síðastliðin 25 ár unnið að geðheilbrigðismálum. Eins og margir óttast Héðinn að áhrifin af Covid-aðgerðunum séu mikil og við eigum eftir að sjá það betur þegar fram í sækir:

„Þetta ástand hefur haft áhrif á geðheilsu nánast allra, en sérstaklega þeirra sem voru einangraðir fyrir. Fólk sem býr eitt getur oft orðið félagslega einangrað og hættan á því er miklu meiri núna. Meðaltalstölur yfir sjálfsvíg síðustu 15 ára er 39 sjálfsvíg á ári. Talan fyrir árið 2020 ætti að koma í sumar og ég hef grun um að hún sé töluvert mikið hærri en þetta meðaltal. Hún er yfir því, við vitum það, en við vitum ekki hve miklu hærri hún er.“ 

Héðinn skrifaði bókina „Vertu úlfur“ um reynslu sína af geðheilbrigðiskerfinu. Bókin, sem hlaut bókmenntaverðlaun, var lengi í vinnslu, enda umfjöllunarefnið erfitt. Nú hefur einnig verið sett upp leikverk um efni bókarinnar:

„Það var mjög sérstakt að sitja og horfa á lokarennsli af leikritinu. Það var súrrealísk upplifun að sitja úti í sal og sjá 25 ár ævi sinnar sett á svið. Ég hélt fyrir augun í korter, en ég er mjög ánægður með útkomuna og þau gerðu þetta gríðarlega vel,“ segir Héðinn, sem var lengi að skrifa bókina:

„Ég man að ég byrjaði að skrifa bókina í 3. persónu, af því að það var allt of sársaukafullt að skrifa hana í fyrstu persónu. Þannig að ég byrjaði bara að skrifa „hann“ og svo færði ég mig yfir í aðra persónu og skrifaði „þú“ og svo endaði ég loksins í fyrstu persónu. Ég var með frábæra ritstjóra sem hjálpuðu mér að ná reiðinni út úr bókinni og tíminn vann mjög mikið með henni líka. Þegar það er verið að fjalla um reynslu af þessu tagi verður að fá að líða ákveðinn tími.“

Héðinn talar í þættinum einnig um geðlyfjaviðskipti í heiminum, sem er gríðarlegur bransi:

„Heildarvelta í geðlyfjasölu í heiminum er um það bil 850 milljarðar dala, sem er 180-föld fjárlög íslenska ríkisins á einu áru. Þú getur rekið íslenska ríkið í 180 ár fyrir veltu geðlyfja í heiminum á einu ári. Það er miklu meira að græða á veikindum en heilsu. Þú græðir ekki pening á fólki sem er í jafnvægi og vill ekki neitt og þarf ekki neitt. Greiningarkerfið á geðsjúkdómum er alltaf að færast lengra og lengra, en að endingu er þetta yfirleitt huglægt mat eins einstaklings á huglægu ástandi annars. Það segir sig sjálft að það getur verið mjög snúið, en þó að það sé mikil viðleitni erum við augljóslega komin of langt. Að endingu erum við að leitast við að hámarka vellíðan okkar og lágmarka vanlíðan. Þegar þú færð greiningu geturðu á ákveðinn hátt ýtt frá þér ábyrgð og fólk er farið að skilgreina sig mjög mikið út frá þessum greiningum. Ég hitti um daginn unga konu um daginn sem sagði við mig:

„Ég er með ódæmigerða einhverfu og ADHD,“ áður en ég náði að spyrja hana: „Fyrirgefðu, hvað heitir þú?“ Við erum án hugsunar farin að skilgreina okkur út frá þessu. Í mínu tilviki hef ég farið fjórum sinnum í alvarlega maníu og þunglyndi í kjölfarið. Þetta nær yfir um það bil 8% af ævi minni ef ég verð áttræður og helst frískur. Þá vaknar spurningin hvort ég eigi að vera með þennan merkimiða geðhvarfasýki á mér líka í 90% af tímanum sem ég var ekki í þessu ástandi?“

Í þættinum ræða Héðinn og Sölvi um geðlækningar, mannlegt eðli, baráttu Héðins við geðhvörf og margt margt fleira.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á hann á YouTube: 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál