„Ég hélt að allt myndi breytast ef ég myndi gifta mig“

Ingibergur Sigurðsson og Tinna Barkardóttir.
Ingibergur Sigurðsson og Tinna Barkardóttir.

Ingibergur Sigurðsson er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpsþættinum Sterk saman. Hann er fæddur 1954 og ólst upp hjá báðum foreldrum sínum í Reykjavík. Aðstæður hans voru bágbornar og minningarnar úr æskunni hafa valdið hjartasári. 

Ein af fyrstu minningum Ingibergs eru þegar móðir hans fór með hann í gult hús, hús Hjálpræðishersins, þá var ekki búið að stofna Kvennaathvarfið. 

„Ég man það mjög vel. Ég var inni í herbergi með mömmu og yngri bróður mínum, pabbi var hinu megin við hurðina og var reiður. Hann vildi komast inn. Hann setti svo öxlina í hurðina svo hún brotnaði. Ég man að flísar fóru út um allt og hurðin brotnaði þar sem lásinn var. Hann kýldi mömmu í andlitið svo hún missti tennur og blæddi.Hún stóð upp og spítti á hann blóði og lausum tönnum og uppskar auðvitað annað högg,“ rifjar Ingibergur upp. 

Horfði upp á mömmu segja ósatt

Hann segist hafa lært margt af þessari upplifun ekki síst þegar hann varð vitni að því að móðir hans hagræddi sannleikanum þegar nágranninn kom til bjargar og lagaði hurðina. 

„Ég lærði meðvirkni og að ljúga þegar mamma sagði: „hurðin stóð aðeins á sér“ þegar hún var spurð hvað hafði komið fyrir,“ segir hann. Hann segir að þetta hjartasár hafi fylgt honum fram eftir aldri og hann hafi fundið mikið fyrir því.

„Mamma sat alla morgna og reykti við eldhúsborðið, bræddi hvítt kerti, mótaði kertavax á meðan það var ennþá volgt og setti svo í neðri góminn yfir brotnu tennurnar svo enginn gæti séð að hún væri tannlaus, þar til hún gat fengið sér falskar,“ segir hann. 

13 ára gamall byrjaði Ingibergur að reykja og ekki löngu síðar að drekka.

„Ég og vinur minn brugguðum og pöntuðum svo einn góðan eins og það var kallað,“ rifjar hann upp. 

Ingibergur flutti ungur að heiman og bjó ásamt öðrum unglingum í yfirgefnu húsi og var í neyslu.

„Á þessum tíma voru dónakallar sem misnotuðu unga stráka. Það var minna um menn sem nýttu sér ungu stelpurnar eins og þekkist mikið í dag,“ segir hann. 

Endaði í fangelsi og var sendur heim

Ungur var Ingibergur farinn að reyna að stjórna neyslunni. Hann flutti til Kaupmannahafnar og bjó í Kristjaníu þar sem hann var á bótum og í neyslu. Ævintýrið endaði skyndilega þegar hann komst í kast við lögin, var sendur í fangelsi og í framhaldinu framseldur til Íslands.

„Ég hélt að allt myndi breytast ef ég myndi gifta mig svo ég bað kærustuna mína að giftast mér, hún var svo sæt, mér til mikillar undrunar sagði hún já og ástæðan var að henni fannst ég svo sætur."

Lengi vel drakk hann illa, flutti milli staða, skipti um störf, breytti um umhverfi og keypti hluti en ekkert breyttist.

„Ég vaknaði úr blackouti inni á Vogi, var í einhverjum slopp og vissi ekkert hvar ég var. Mér var sagt að koma á fyrirlestur,“

Ingibergur var á hnefanum í þrettán ár áður en hann fann lausn í hópi fólks í tólf spora samtökum. Hann hefur verið í bata síðan og þakkar fyrir hvern dag ódrukkinn. Að geta verið til staðar fyrir börnin sín er honum mikilvægt. Hann er líka þakklátur fyrir að sæta stelpan sem hann kvæntist hafi ekki gefist upp á honum. Hann tekst nú á við  fjórða stigs krabbamein og lifir í núinu með þeim sem honum þykir vænt um. 

Hægt er að hlusta á Sterk saman á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál