Þær sögusagnir hafa verið í gangi síðustu mánuði að Hollywood-leikarinn, Morgan Freeman, eigi í ástarsambandi við kornunga stúlku. Það væri kannski ekkert athugavert við fréttina ef stúlkan væri ekki stjúp-barnabarn hans.
E’Dena Hines er 27 ára og vísar Freeman því til föðurhúsanna að þau eigi í ástarsambandi. „Þetta er bara léleg leið til að selja slúðurblöð að halda þessu fram,“ sagði Freeman í samtali við vefmiðilinn TMZ. Hann segir að sögusagnirnar hafi farið illa með líf stúlkunnar. „Sögusagnir um meint ástarsamband mitt við barnabarn mitt er út í hött og mjög særandi fyrir mig og mína fjölskyldu.“
Hines er barnabarn fyrstu eiginkonu Freeman, Jeanette Adair Bradshaw, en þau skildu árið 1979.