Sveinn Andri er pabbinn

Kristrún Ösp og Sveinn Andri.
Kristrún Ösp og Sveinn Andri. mbl.is/Golli

Sveinn Andri Sveinsson og Kristrún Ösp Barkardóttir voru áberandi í fyrra þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Sambandið varði þó ekki nema í nokkra mánuði og lauk í byrjun síðasta sumars. Þegar hausta tók komst Kristrún Ösp að því að hún væri með barni og var óvíst hver faðirinn væri, en tveir komu til greina.

Í byrjun mars fæddist fríðleikspilturinn Baltasar Börkur. Eftir að hafa farið í DNA-próf er ljóst að Sveinn Andri Sveinsson er pabbinn. Þegar Smartland hafði samband við Svein Andra sagðist hann himinlifandi yfir fréttunum.

„Er stoltur yfir því að eiga svona myndarlegan dreng,“ sagði Sveinn Andri. 

Kristrún Ösp í kjól frá Karen Millen.
Kristrún Ösp í kjól frá Karen Millen. Sigurgeir Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál