Ásta Hrafnhildur og Sveinn Andri nýtt par

Sveinn Andri Sveinsson og Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir.
Sveinn Andri Sveinsson og Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir. mbl.is/Freyja Gylfa

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir ritstjóri Séð og Heyrt og Sveinn Andri Sveinsson lögmaður eru nýtt par. Þau mættu saman í Kassann í Þjóðleikhúsinu í gær á sýninguna Maður sem heitir Ove. Sigurður Sigurjónsson eða Siggi Sigurjóns eins og hann er kallaður fór á kostum sem Ove.

Ásta Hrafnhildur og Sveinn Andri hafa verið nokkuð dugleg að sækja menningarviðburði en þau fóru á frumsýningu í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi. Sveinn Andri hefur verið fastagestur í leikhúsunum síðustu ár og mætt á nánast allar frumsýningar. 

Ásta Hrafnhildur tók við sem ritstjóri Séð og Heyrt í vor af Eiríki Jónssyni en hún var fræg á einni nóttu þegar hún stýrði Stundinni okkar með kettinum Kela. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál