Bubbi Morthens meiddist á hendi þegar hann söng með Dimmu í afmæli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á föstudagskvöldið. Afmælið fór fram í húsnæði við Hverfisgötu í Reykjavík en gengið er inn portið við Stjórnarráðið til að komast inn.
Bubbi vildi ekki gera mikið úr þessu þegar Smartland hafði samband við hann.
„Ég veit ekkert hvað gerðist. Ég hef líklega slegið hendinni í eitthvað,“ segir hann í samtali við Smartland.
Þegar Bubbi kom heim setti hann ís á höndina og er allur að koma til.
„Ég er allavega ekki brotinn,“ segir hann.
Bubbi og Dimma slógu í gegn í afmælinu og gerðu allt tryllt þegar þeir tóku lagið Fjöllin hafa vakað sem er náttúrlega löngu orðið klassískur rokksmellur.