Marín Manda og kærasti hennar, Hannes Frímann, eru að ferðast á grísku eyjunum og birta dásamlegar myndir sem sýna fegurðina við þennan stað.
Það getur verið freistandi að fylgja vinum og vandamönnum eftir á samfélagsmiðlum, þegar sólin er langt bak við skýin á landinu og fólk er að ferðast um heiminn í leit að slökun og vellíðan þangað sem sólin er hátt á lofti.
Smartland hefur verið að fylgjast með Marín Möndu. Það er augljóst að Santorini er ævintýri líkust og ef marka má litina á myndunum eru þeir langt frá þeim fallegu gráu tónum sem við Íslendingar eigum að venjast þessa dagana.