Síðasta vika var hressileg í lífi landsmanna. Árshátíð RÚV var haldin með glans í Reykjavík en í Kaupmannahöfn skemmtu starfsmenn Kviku banka sér. Þar á meðal var Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason lögfræðingur og framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku. Hann var í sínu fínasta pússi á árshátíðinni.
Þar voru líka Marín Manda Magnúsdóttir og Hannes Frímann Hrólfsson framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku og auðvitað bankastjórinn Ármann Þorvaldsson. Logi Bergmann var veislustjóri á árshátíðinni en hljómsveit kvöldsins var skipuð starfsmönnum.
Á meðan starfsmenn Kviku djömmuð í Kóngsins Köben djömmuðu starfsmenn RÚV við Snorrabraut í Reykjavík þar sem árshátíð þeirra haldin. Voru starfsmenn fyrirtækisins í miklu stuði og algerlega í sínu fínasta pússi og hikuðu ekki við að mynda sig fyrir framan bleika pallíettubakgrunninn.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna var á árshátíð RÚV ásamt eiginkonu sinni, Steinunni Þórhallsdóttur sem er starfsmaður þar.
Bergsteinn Sigurðsson og Guðrún Sóley Gestsdóttir umsjónarmenn Menningarinnar á RÚV voru í spariskapi ásamt Veru Illugadóttur sem býr til skemmtilegustu útvarpsþættina á Rás 1. Með þeim á myndinni var líka Atli Már Steinarsson.
Snærós Sindradóttir lét sig ekki vanta á árshátíð RÚV.