Bundinn í gólfinu í 8 tíma á meðan brotist var inn

Rich Piana og Sara Piana þegar þau voru saman.
Rich Piana og Sara Piana þegar þau voru saman. Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson

Sara Piana er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Sara, sem hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, fannst tími til kominn að segja sína sögu. Í þessu viðtali segir hún söguna alla, meðal annars frá því skrautlegasta í sambandi sínu við vaxtarræktarkappann Rich Piana. Eitt af því var þegar brotist var inn í húsið þeirra á meðan þau voru að gifta sig í Las Vegas

„Sonur vinkonu okkar var í húsinu okkar til að passa hundana á meðan við vorum í burtu. En bókstaflega á sama tíma og við vorum í athöfninni að gifta okkur réðust menn inn í húsið sem „teipuðu“ fyrir munninn og hendurnar á stráknum og skildu hann eftir á gólfinu á meðan þeir sóttu verðmæti. Þeir reyndu meira að segja að taka stóran peningaskáp af efri hæðinni sem hefur líklega verið nærri tonn að þyngd og þeir eyðilögðu veggi og gólf við að reyna að koma honum út úr húsinu. Þeir voru í 8-9 klukkutíma að athafna sig í húsinu, sem við bæði sáum í öryggisvélum í húsinu eftir á og líka af frásögn aumingja stráksins sem lá þarna bundinn á gólfinu allan tímann. Hann náði að skríða inn til nágrannans eftir að þeir voru farnir og fá hann til að hringja á 911. Það kom í ljós eftir á að innbrotið var skipulagt af manni sem hafði tengst Rich og var ósáttur við hann. Þessi maður hafði setið í fangelsum og tengdist eiturlyfjahringjum í Mexíkó og í raun bara einhver sem þú vilt ekki hafa á móti þér. Hann hafði keypt stera af Rich og þekkti því íbúðina okkar.“

Sara segir að þessi atburður hafi breytt miklu, bæði vegna þess að hún hafi fengið vægt taugaáfall og Rich hafi orðið vænisjúkari eftir þetta. 

„Þetta var hræðilegt og það var gjörsamlega allt í rúst þegar við komum til baka. Mér leið eins og ég væri aftur komin inn í hringavitleysuna sem ég hafði verið í áður en ég flúði Ísland. Rich gekk um með byssu á sér eftir þennan atburð af því að hann óttaðist alltaf það versta.“

Hún segist ekki hafa hugsað sér þessa tegund af líferni þegar þau kynntust, en það hafi þróast hægt og rólega í verri og verri átt. Ekki síst kaup, sala og neysla á sterum og öðrum efnum.

„Hann var með vin sinn sem framleiddi sterana, alls konar tegundir og kom alltaf með þá. Hann keypti stera af þessum strák fyrir 30 milljónir íslenskar mánaðarlega. Og seldi það svo áfram til annarra. Það voru sterakassar úti um alla íbúð og þegar verst var gat maður ekki þverfótað fyrir þessu helvíti. Þetta var bókstaflega úti um allt. Svo kom fólk heim til okkar eða hitti á hann í ræktinni til að kaupa af honum. Hver og einn aðili keypti mjög mikið magn, sem þeir voru síðan sjálfir að selja. Auðvitað var ég ekkert ánægð með þetta og maður er ekki öruggur með þetta í húsinu. Maður veit aldrei hvort eða hvenær löggan kemur og bara að ég sé á staðnum þýðir að ég sé ekki í góðum málum,“ segir Sara, sem segir að þetta hafi smátt og smátt aukist og að hún hafi verið orðin allt of samdauna þessu líferni.

„Ég komst ekkert að þessu í byrjun sambandsins, það var ekki fyrr en við byrjuðum að búa saman sem þetta kom upp á yfirborðið og var í miklu miklu minna magni fyrst um sinn. En strákurinn sem var að búa þetta til fyrir hann var með verksmiðju til að gera þetta allt saman sem ég kom aldrei inn í. En svo sá ég bara magnið þegar þetta kom til okkar mánaðarlega og það var ekkert smáræði. Svo fylgir þessu auðvitað mikið reiðufé og hann geymdi peninga úti um allt. Hann faldi seðla í boxpúðum, ljósakrónum og á fleiri stöðum um alla íbúð. Hann var mjög á móti því að grafa peningana, þannig að þetta var falið alls staðar þar sem hægt var að geyma peninga.“

Sara segir að á endanum sé þetta allt saman lífsreynsla og að hún sjái ekki eftir neinu og hugsi hlýlega til Rich Piana.

„Þegar ég var að fara frá Kaliforníu fór ég að leiðinu hans og talaði við hann og fyrirgaf honum og þakkaði fyrir alla góðu tímana sem við áttum saman og allt það sem ég lærði af þessu öllu saman.“

Hún segist samt afar glöð yfir því að vera komin aftur til Íslands eftir öll þessi ár.

„Það tók mig mánuð að komast heim. Öllum flugum alltaf frestað og ástandið í Bandaríkjunum er bara ekki skemmtilegt. Þannig að ég var mjög feginn þegar ég komst loksins í burtu þaðan,“ segir Sara, sem lærir nú hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri.

„Það er bara æðislegt að vera komin aftur heim og ég er mjög bjartsýn fyrir framtíðinni og hlakka til þess að byrja þennan nýja kafla.“

Í þættinum ræða Sölvi og Sara um tímabilið þegar hún fór langt inn í fitness-heiminn eftir að hún flutti til Bandaríkjanna og síðan frá skrautlegu líferni sínu með Rich Piana, sem oft var öðruvísi en það virkaði út á við. Sara lærir nú hjúkrunarfræði og hlakkar til næsta kafla í sínu lífi, eftir að hafa fengið margfaldan æviskammt af dramatík, eins og hún segir sjálf.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.  

Einnig er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni á YouTube: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál