„Skrýtið að vera ekki í vinnunni um jólin“

Fríða Björk Sandholt er snillingur í að gera fallegar kökur.
Fríða Björk Sandholt er snillingur í að gera fallegar kökur. mbl.is/Arnþór Birkisson

Fríða Björk Sandholt sjúkraliði elskar að baka eins og margir í fjölskyldunni hennar. Í fyrra fluttu tveir álfar óvænt inn á heimilið. 

Fríða Björk starfar á Landspítalanum. Hún býr í Hafnafirði ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum. Þau keyptu húsið sem þau búa í tilbúið undir tréverk í nóvember árið 2016 og fluttu inn í það í janúar árið 2017.

„Jólin 2016 voru svolítið öðruvísi þar sem mikill tími fór í að klára húsið að innan svo við gætum flutt inn. Við vorum til að mynda tvö saman að parketleggja allt húsið á milli jóla og nýárs það árið.“

Fríða Björk er nýbúin að minnka við sig í starfi á spítalanum þar sem hún starfar með manninum sínum í spennandi verkefnum.

„Ég er nýbúin að minnka við mig starfshlutfallið og starfa núna í heildsölunni Run2 ásamt því að reka Titan stálsmiðju sem er lítið fyrirtæki með manninum mínum. Fyrirtækið stofnuðum við saman árið 2017. Þar sé ég um markaðssetningu, ásamt því að sjá um alla uppsetningu með manninum mínum í stórum verkum eins og stórum gler/stálveggjum eða handriðum. Ég hef líka verið að hanna vörur fyrir fyrirtækið, sem hafa verið mjög vinsælar.“

Hvaða hug berðu til jólanna?

„Frá því að ég man eftir mér hef ég alltaf verið mikið jólabarn. Mér finnst aðventan skemmtilegur tími sem gefur mörg tækifæri fyrir fjölskyldur og vini til að koma saman og njóta þess að undirbúa jólin og búa til góðar minningar saman í skemmtilegri samveru.“

Fríða Björk segir mestu máli skipta að eiga gæðastundir um jólin með fjölskyldunni sinni.

„Að því sögðu þá læt ég ekki ganga fyrir að þrífa húsið fyrir jólin. Engu að síður þá nýt ég þess betur að skreyta hreint. Ég er ekki að þrífa húsið hátt og lágt, skápana og svoleiðis. Það læt ég frekar bíða fram á vorið.“

Hvernig verða jólin að þessu sinni?

„Jólin verða með hefðbundnu sniði hjá okkur þetta árið, fyrir utan að nú er ég ekki að vinna fasta vaktavinnu eins og verið hefur undanfarin ár. Ég er því ekki að vinna á hátíðisdögum, eins og á aðfangadag, jóladag eða um áramótin. Það verður eflaust svolítið skrítið að vera ekki að vinna um jólin, en ég ætla að njóta þess til hins ýtrasta að vera í fríi með fjölskyldunni yfir hátíðirnar.“

Fríða Björk er í Sandholt-fjölskyldunni. Móðir Egils Sandholt sem stofnaði Sandholtsbakarí var systir langalangafa hennar.

„Ættin er orðin svo stór og leggurinn því frekar langur. Það er mikill áhugi fyrir bakstri og kökum í ættinni.

Ég elska að baka og skreyta kökur og hef gert mikið af því í gegnum tíðina. Ég nota aðventuna til dæmis til að baka smákökur með börnunum, skreyta piparkökuhús og svo höfum við fjölskylda mannsins míns undanfarin ár reynt að hittast og skera og steikja laufabrauð. Það er skemmtileg samvera sem mér þykir mjög vænt um.“

Fríða Björk hefur ekki langt að sækja hæfileika sína í …
Fríða Björk hefur ekki langt að sækja hæfileika sína í bakstri. mbl.is/Arnþór Birkisson

Hvað gerir jólin að góðum tíma?

„Fyrir mér er aðventan stór hluti af jólunum og samveran með fjölskyldunni skipar þar stærsta sessinn og allar gæðastundirnar sem við eigum saman. Að njóta þess að vera saman og gera skemmtilega hluti eins og að baka og kíkja í jólaþorpið í miðbæ Hafnarfjarðar. Ganga um hverfið og skoða jólaljósin, skreyta, föndra og borða góðan mat. Svo má ekki gleyma jólaboðunum. Það er alltaf gaman að hitta stórfjölskylduna og þar sem fólk er oft mjög upptekið í amstri dagsins allt árið, þá er svo gott að geta hitt fólkið sitt yfir kaffibolla, konfekti og spjallað saman.“

Heldur í hefðirnar

Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin?

„Ég tel mig ekki vera mjög fasta í hefðum, en samt eru hlutir sem við fjölskyldan gerum alltaf og mér finnst ekki mega breyta. Við skreytum jólatréð okkar alltaf á Þorláksmessu. Það er hefð sem við höfum ekki vikið frá síðan við hjónin byrjuðum að búa fyrir rúmum 18 árum. Sumum finnst við gamaldags að vilja halda í þessa hefð, en fyrir okkur fjölskylduna er það svolítið heilagur tími.

Á aðventunni les ég líka alltaf einhverja jólasögu með börnunum mínum. Skemmtilegast finnst okkur að finna bók sem er með einum kafla á dag alla daga í desember fram að jólum. Við lesum líka alltaf bókina „Jólin koma“ eftir Jóhannes úr Kötlum. Það er klassísk bók og stór hluti af jólunum að mínu mati. Þar er gaman að lesa um jólasveinana jafnóðum og þeir tínast til byggða.“

Hvað gerið þið aldrei?

„Við borðum aldrei skötu, en aftur á móti höfum við alltaf soðna ýsu í matinn á þorláksmessu. Okkur finnst gott að borða eitthvað létt þá þar sem mikið er um þungar máltíðir yfir hátíðirnar.“

Fengu tvo álfa inn á heimilið í fyrra

Jólahefðirnar eru alltaf að þróast hjá fjölskyldunni í Hafnarfirði.

„Það skapaðist á síðasta ári ný skemmtileg hefð hjá okkur þegar tveir jólaálfar fluttu inn á heimilið. Sagan segir að vegna annríkis bandaríska jólasveinsins sendi hann jólaálfa á heimili barnanna í landinu til að fylgjast með því hverjir eru góðir og þægir fyrir jólin. Samkvæmt sögunni birtast álfarnir óvænt á heimilum barnanna og börnin sem þar búa mega gefa þeim nöfn og hvísla þeim að álfunum. Með ást og væntumþykju barnanna fær álfurinn sérstaka töfra. Í lok hvers dags þegar fjölskyldan er farin að sofa vaknar álfurinn til lífsins og flýgur til jólasveinsins eða jólasveinanna hér á landi og segir þeim hvernig dagurinn var á því heimili og hvort börnin hafi verið þæg og góð. Hér á Íslandi eru börnin orðin svo mörg miðað við það sem var fyrir fimmtíu til sextíu árum, að jólasveinarnir okkar þurfa alveg á þessari hjálp að halda. Þegar álfarnir lifna við, þá eiga þeir það líka til að gera allskonar prakkarastrik. Svo sem að stelast í morgunkornið eða leika sér með leikföng barnanna.

View this post on Instagram

A post shared by Fridabsand (@fridabsandholt)

Okkar jólaálfar heita Denni og Adda. Það var mjög gaman að sjá á hverjum degi þegar við vöknuðum, hvaða prakkarastrik þeir höfðu tekið upp á um nóttina. Eina nóttina stálu þeir meira að segja stafnum hennar Grýlu og komu með hann heim í stofu til okkar. Það vakti mikla kátínu, sérstaklega hjá yngsta barninu okkar. Eina nóttina stálust þeir líka í tilbúið smákökudeig sem við áttum í ísskápnum og þegar fjölskyldan vaknaði voru þeir búnir að baka smákökur og því fengu allir á heimilinu nýbakaðar jólasmákökur í morgunmat þann daginn. Það er líka ein mikilvæg regla. Það má aldrei snerta álfana og ef það er gert þá geta þeir misst töframáttinn sinn.

Það getur því verið skrautlegt heimilið í desember þar sem ekki má færa þessa litlu prakkara úr stað eftir að þeir hafa gert eitthvað af sér.“

Birtir prakkarastrikin á samfélagsmiðlum

Fríða Björk segir álfana fara aftur upp í fjöll til jólasveinanna á jólanótt og birtast svo aftur fyrir jólin hjá sömu fjölskyldum.

„Á okkar heimili er heimasætan nú þegar farin að bíða spennt eftir því að álfarnir Denni og Adda komi og setji smá lit á heimilislífið.

Í fyrra birti ég myndir af prakkarastrikum álfanna á Instagram-reikningi mínum og ég stefni á að gera það í ár líka.“

View this post on Instagram

A post shared by Fridabsand (@fridabsandholt)

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál